Góð og þægileg síða
Þriðjudagur, 18. maí 2010
Þessi síða, datamarket.com, er einstaklega þægileg í notkun. Ég hef aðeins skoðað hana eftir að hafa lesið þessa frétt og finnst hún virka mjög vel. Þarna er safnað saman upplýsingum sem ég hef oft verið að leita að með hjálp skýrslna og excel skjala sem eru mistorskilin og ekki öll mjög þægileg aflestrar.
Það besta við hana er þó að þarna er safnað saman gagnasöfnum frá mörgum aðilum og hægt að finna nánast allt á sama stað - ókeypis.
Það liggur við að ég hlakki til að gera næsta skólaverkefni þar sem ég þarf að finna gögn, sjá hvort þetta sé eins þægilegt og ég vona. Fleiri lönd þyrftu svo að taka sér þetta til fyrirmyndar því ég hef oft verið að leita að upplýsingum um önnur lönd og átt erfitt með að finna þær. Yfirleitt fær maður reyndar ágætis upplýsingar frá Hagstofum landanna en ekki alltaf mjög aðgengilegar fyrir útlendinga.
Lykilorð: datamarket, gagnasafn, hafstofa, excel, skýrslur
|
Opna gagnatorg á netinu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Meginflokkur: Vefurinn | Aukaflokkar: Tölvur og tækni, Stjórnmál og samfélag, Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 13:22 | Facebook



Athugasemdir
www.wolframalpha.com tekur þessa síðu í nefið.
TT (IP-tala skráð) 18.5.2010 kl. 17:15
Það er rétt hjá þér að þessi síða sem þú nefnir er mjög góð með mikið af allskonar upplýsingum. Takk fyrir að benda á hana. Ég á eflaust eftir að nota báðar síðurnar mikið í framtíðinni. Wolframalpha.com er ekki með allar upplýsingarnar sem Datamarket inniheldur, t.d. nánari upplýsingar um ferðamenn á Íslandi, en hún hefur hinsvegar hafsjó af öðrum upplýsingum um fjölmörg lönd.
Andri, 18.5.2010 kl. 19:22
Þakka hlý orð Andri. Vona að síðan nýtist þér sem allra best. Ekki hika við að hafa samband við okkur ef þú rekst á hluti sem þér finnst að mættu betur fara eða ert með hugmyndir að gögnum sem mætti bæta við eða eiginleikum sem kerfið ætti að bjóða upp á.
WolframAlpha er algert meistaraverk. Við reynum ekkert sérstaklega að bera okkur saman við hana, enda er nálgunin býsna ólík. Þó er það rétt sem Andri segir að DataMarket hefur að geyma margfalt meiri upplýsingar um Ísland heldur en WolframAlpha. Mig grunar að í leit að tölulegum upplýsingum um Ísland geti verið gott að hafa báðar síðurnar í huga - WolframAlpha til að fá alþjóðlegan samanburð og DataMarket til að kafa djúpt í séríslenska hluti.
Svo sjáum við til hvað gerist í framtíðinni :)
Kv,
Hjálmar Gíslason, stofnandi DataMarket
Hjálmar Gíslason (IP-tala skráð) 22.5.2010 kl. 10:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.