Að finna tilgang sinn í lífinu: að setja sér markmið og fara eftir þeim
11.1.2012 | 23:11
Á sunnudaginn var talaði ég um það að eiga sér tilgang í lífinu, finna þann tilgang og leggja sig fram við að ná að uppfylla tilganginn með því að setja sér ákveðna tegund af markmiðum sem virka.
Svo fjallaði ég í stuttu máli um ákveðið atriði sem kemur í veg fyrir að fólk nái árangri, eitthvað sem kallast (í minni þýðingu allavega) "Lært hjálparleysi".
Það er svo auðvelt að fara í gegnum allt lífið án þess að ná að gera neitt af viti með lífið. Þetta er eitthvað sem allir hafa gott af að skoða.
Hægt er að skoða myndbandið með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.
120108 - Sunnudagur - Andri from KrossinnTV on Vimeo.
Lykilorð: Tilgangur lífsins, sýn, markmið, lært hjálparleysi
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 23:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Af hverju að skíra fullorðna?
11.1.2012 | 22:58
Ég talaði um það ekki fyrir löngu á samkomu í Krossinum, af hverju við skírum ekki ungabörn. Í leiðinni fjallaði ég um helstu atriði sem tengjast skírninni og um það hver merking hennar er. Kom líka inn á það af hverju skírt sé í Jesú nafni en ekki nafni Guðs föður, sonar og heilags anda eins og víða er gert.
Ég reyndi að gera það í fullri einlægni og eftir minni bestu getu. Ræðuna má sjá með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.
Það er opið fyrir athugasemdir, en ég þarf að samþykkja þær. Ég samþykki aðeins málefnalegar athugasemdir en er samt ekkert allt of duglegur að kíkja á bloggið til þess að skoða athugasemdir, þannig að það má vera að það taki einhvern tíma.
111227 - Þriðjudagur - Andri from KrossinnTV on Vimeo.
Lykilorð: Skírn, Jesús, kristin trú, Faðir, sonur og heilagur andi
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 23:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Klukkan 5.03
11.9.2010 | 11:25
Ég lenti í einhverju stórfurðulegu fyrir nokkrum dögum síðan. Ég var tiltölulega nýbúinn að hlusta á predikun hjá erlendum predikara um það að Guð væri Guð sem gæti gefið fólki tákn. Þá var hann t.d. að tala um að þegar fólk biður Guð um hjálp, þá gefi hann tákn um að hann muni mæta þeim, jafnvel þó hann svari bæninni ekki strax.
Mér leist mjög vel á það, því það er oft erfitt að bíða eftir bænasvari, og finnast stundum jafnvel að Guð hafi ekkert verið að hlusta.
Ég ákvað að leita Guðs með ákveðið málefni og biðja hann um tákn um að hann myndi svara því bænarefni. Til þess að sýna mér að hann myndi svara mér þá bað ég hann um að vekja mig kl. 5.03 þá nóttina. Ég verð þó að viðurkenna að ég hafði ekki mikla trú á að hann myndi gera þetta, fór bara að hugsa um það af hverju ég sagði 5.03 en ekki bara kl. 5.00 og sofnaði fljótlega eftir það.
Um nóttina vaknaði ég svo dauðþreyttur og vildi sjá hversu lengi ég gæti sofið til viðbótar. Ég leit á klukkuna og sá að hún var 5.03. Þá rifjaðist upp fyrir mér bænin frá kvöldinu áður.
Að sjálfsögðu glaðvaknaði ég, spenntur yfir því að Guð hefði gefið mér tákn.
Þetta var þörf áminning fyrir mig til þess að minna mig á að Guð er svo nákvæmur. Fyrst hann gat vakið mig á nákvæmlega réttri mínútu þá getur hann líka svarað öðrum bænum á nákvæmlega réttum tíma... upp á mínútu.
Guð er góður.
Af hverju trúi ég Biblíunni?
5.6.2010 | 00:01
Það eru eflaust margir sem skilja ekki af hverju fólk trúir Biblíunni. Ég skil það fólk að vissu leyti þar sem það hafa ekki allir kynnt sér málið nógu vel. Ég vona að ég geti svarað einhverum spurningum hérna.
Biblían er áreiðanlegt safn sögulegra rita
Biblían, sem flestir tala um sem eina bók, er ekki bara ein bók, heldur er hún samansafn 66 bóka og bréfa. Hún var ekki bara skrifuð af einni manneskju, heldur af yfir 40 manns, á mörgum tungumálum (grísku, hebresku og arameísku), í mörgum heimsálfum (asíu, afríku og evrópu) á 1500 árum af fólki sem þekkti ekki hvort annað (augljóslega).
Munurinn á Biblíunni og flestum öðrum trúarritum er að Biblían var ekki skrifuð af einni manneskju sem segist hafa heyrt frá Guði, heldur er hún safn margra rita sem stangast ekki á, þrátt fyrir þann fjölda mismunandi fólks sem kom að skrifunum.
Fjölmargar fornminjar hafa fundist sem styðja við það sem kemur fram í Biblíunni (yfir 23.000 uppgreftrar samkvæmt einni heimild).
Læknirinn Lúkas sem skrifaði Lúkasarguðspjall fyrir mann að nafni Þeófílus hafði þetta að segja í formála guðspjallsins:
"1Margir hafa tekið sér fyrir hendur að rekja sögu þeirra viðburða, er gjörst hafa meðal vor,
2samkvæmt því, sem oss hafa flutt þeir menn, er frá öndverðu voru sjónarvottar og þjónar orðsins.
3Nú hef ég athugað kostgæfilega allt þetta frá upphafi og réð því einnig af að rita samfellda sögu fyrir þig, göfugi Þeófílus,
4svo að þú megir ganga úr skugga um sannindi þeirra frásagna, sem þú hefur fræðst um." (Lúk 1.1-4)
Markmið Lúkasar var ekki að skrifa ævintýri, heldur var hann að skrifa áreiðanlega heimild þar sem hann þaulkannaði allar staðreyndir.
Biblían var skrifuð af sjónarvottum
Biblían var ekki skrifuð mörg hundruð árum eftir að atburðirnir áttu sér stað, heldur voru þeir skrifaðir niður, í mörgum tilfellum, af sjónarvottum stuttu síðar (sérstaklega í Nýja testamentinu).
Jóhannes sagði eftirfarandi:
"1Efni vort er það sem var frá upphafi, það sem vér höfum heyrt, það sem vér höfum séð með augum vorum, það sem vér horfðum á og hendur vorar þreifuðu á, það er orð lífsins.
2Og lífið var opinberað, og vér höfum séð það og vottum um það og boðum yður lífið eilífa, sem var hjá föðurnum og var opinberað oss.
3Já, það sem vér höfum séð og heyrt, það boðum vér yður einnig," 1.Jóh 1.1-3
Hann er að tala um eitthvað sem hann sá, heyrði og upplifði... og reyndar margir fleiri.
Páll postuli sagði:
"5og að hann birtist Kefasi, síðan þeim tólf.
6Því næst birtist hann meira en fimm hundruð bræðrum í einu, sem flestir eru á lífi allt til þessa, en nokkrir eru sofnaðir.
7Síðan birtist hann Jakobi, því næst postulunum öllum.
8En síðast allra birtist hann einnig mér, eins og ótímaburði." 1Kor 15.5-8
Þetta var skrifað á tíma þegar flestir af þessum 500 manns sem Jesús birtist voru enn á lífi. Hver myndi skrifa slíkt þegar svo auðvelt væri að véfengja það ef það væri ekki satt?
En hvað með alla þá sem segja að Biblían hafi verið fölsuð og þetta geti því ekki verið satt?
Það hafa margir búið til ýmsar sögur um uppruna Biblíunnar sem eiga sér ekki stoð í neinum
staðreyndum.
Það eru til 6000 handrit og bútar af handritum af Nýja testamentinu. Ekki nóg með það, heldur eru til bútar af Nýja testamentinu sem eru frá 120 e.Kr. Til samanburðar eru mörg handrit af öðrum ritum sem enginn véfengir sem aðeins eru til örfá handrit af (5-10) og þó eru þau handrit skrifuð mörghundruð eða þúsund árum eftir að upphaflegu handritin voru skrifuð. Ég er nú ekki neinn sérfræðingurí þessum málum þannig að ég get ekki nefnt nákvæmlega handritin en hef þó heyrt talað t.d. um rit Aristótelesar og Julius Caesar's Gallic Wars (þekki ekki rétta þýðingu á þessu).
Ef það hefur einhver ætlað að breyta öllum þessum handritum þá hefði sá hinn sami átt mikið verk fyrir höndum, þar sem þau fundust mjög víða. Auk þessara 6000 handrita sem þurfti að breyta þá voru þýðingar gerðar á mörg tungumál, en þær hefði þurft að falsa líka, þar sem þær segja allar sömu söguna. Það hefði hreinlega verið ómögulegt verk að falsa þetta allt.
Að auki voru fyrstu kirkjufeðurnir mjög duglegir að vitna í Biblíuna og reyndar hef ég heyrt að 95-98% af Nýja testamentinu væri hægt að endurgera útfrá tilvitnunum þeirra. Þannig að ef einhver ætlaði sér að falsa Nýja testamentið þá hefði þurft að breyta þeim tilvitnunum líka án þess að nokkur tæki eftir því.
Við erum semsagt með áreiðanleg rit sem skrifuð voru niður af sjónarvottum á meðan aðrir sjónarvottar voru enn á lífi.
Allt í lagi, þetta eru sögulega áreiðanleg rit, hvað með það?
Í fyrsta lagi þá segja þau frá kraftaverkum sem enginn venjulegur maður getur gert; lamaðir fá kraft í limina, blindir sjá og heyrnalausir heyra. Að því ógleymdu að Jesús var krossfestur og hann dó, en Guð reysti hann frá dauðum.
Það segir mér að þær sögur voru sannar, en er Biblían samt orð Guðs þó hún segi rétt frá?
Spádómar í þessum sögulegu áreiðanlegu ritum sanna Guðdómleika Biblíunnar.
Þegar Jesús var krossfestur:
"34Og á nóni kallaði Jesús hárri röddu: Elóí, Elóí, lama sabaktaní! Það þýðir: Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig?" Mar 15.34
Þarna var hann ekki bara að kalla á Guð, heldur var hann að kalla út nafnið á sálmi, eða lagi, sem Gyðingar þekktu. Í Biblíunni okkar heitir hann Sálmur 22, en á þessum tíma var ekki búið að tölusetja kafla, sálma og vers og því hefur þessi sálmur verið kallaður: Elóí, Elóí, lama sabaktaní!
"2Guð minn, Guð minn, hví hefir þú yfirgefið mig (Elóí, Elóí, lama sabaktaní)? Ég hrópa, en hjálp mín er fjarlæg.
3Guð minn! hrópa ég um daga, en þú svarar ekki, og um nætur, en ég finn enga fró.
4Og samt ert þú Hinn heilagi, sá er ríkir uppi yfir lofsöngvum Ísraels.
5Þér treystu feður vorir, þeir treystu þér, og þú hjálpaðir þeim,
6til þín hrópuðu þeir, og þeim var bjargað, þér treystu þeir og urðu ekki til skammar.
7En ég er maðkur og eigi maður, til spotts fyrir menn og fyrirlitinn af lýðnum.
8Allir þeir er sjá mig gjöra gys að mér, bregða grönum og hrista höfuðið.
9Hann fól málefni sitt Drottni. Hann hjálpi honum! hann frelsi hann, því að hann hefir þóknun á honum!
10Já, þú leiddir mig fram af móðurlífi, lést mig liggja öruggan við brjóst móður minnar.
11Til þín var mér varpað frá móðurskauti, frá móðurlífi ert þú Guð minn.
12Ver eigi fjarri mér, því að neyðin er nærri, og enginn hjálpar.
13Sterk naut umkringja mig, Basans uxar slá hring um mig.
14Þeir glenna upp ginið í móti mér sem bráðsólgið, öskrandi ljón.
15"Mér er hellt út sem vatni, og öll bein mín eru gliðnuð sundur; hjarta mitt er sem vax, bráðnað sundur í brjósti mér;"
16gómur minn er þurr sem brenndur leir, og tungan loðir föst í munni mér. Og í duft dauðans leggur þú mig.
17Því að hundar umkringja mig, hópur illvirkja slær hring um mig, hendur mínar og fætur hafa þeir gegnumstungið.
18Ég get talið öll mín bein þeir horfa á og hafa mig að augnagamni,
19þeir skipta með sér klæðum mínum og kasta hlut um kyrtil minn.
20En þú, ó Drottinn, ver eigi fjarri! þú styrkur minn, skunda mér til hjálpar," Sálmur 22
Þessi sálmur sem Jesús hrópar nafnið á er spádómur sem uppfylltist þennan dag í augsýn fjölmargra. Það magnaða er svo að þetta er bara einn af fjölmörgum spádómum sem hafa svo orðið að veruleika í gegnum tíðina.
... þetta eru semsagt nokkrar af ástæðunum fyrir því að ég trúi Biblíunni og trúi því að hún sé Orð Guðs.
Lykilorð: Biblían, sögulegar heimildir, Jesús, ritningarnar, orð Guðs
Trúmál og siðferði | Breytt 19.6.2010 kl. 00:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Myndirðu bjarga drukknandi barni?
26.3.2010 | 11:09
Ég fékk þessa spurningu í tölvupósti í dag. Hún fær mann til að hugsa.
"If you are walking by a pond and you see a child drowning, do you save her? What if it means ruining a very fancy pair of Italian shoes?" Okay, if we assume the answer is yes, then why not spend the cost of those shoes to save 20 kids who are starving to death across town or the world? There's really no difference. (Godin)
Biblían í símann
25.3.2010 | 19:17
Ég er kominn með æðislegt forrit í símann hjá mér. Reyndar nokkrir mánuðir síðan.
Núna get ég lesið Biblíuna beint úr gsm símanum, flett upp á versum og sent þau í sms. Æðislegt forrit að öllu leyti nema því að íslenska Biblían er með einhvern rugling á versum, sum vantar og önnur eru á röngum stað. Ég læt það þó ekki stoppa mig og les nánast bara Biblíuna í símanum eða tölvunni þessa dagana. Enda æðislegt að geta lesið hana hvar og hvenær sem er og geta verið með einu klikki kominn nákvæmlega á staðinn sem ég hætti á síðast.
Sá sem gerði þessa Biblíu (maður frá Crosswire Bible Society) bannaði mér þó að dreifa þessari útgáfu út af villunum. Ég hafði samband við Hið íslenska Biblíufélag og er að vonast eftir að þeir geti látið þá fá rétta útgáfu af Biblíunni á réttu formati. Þeir hafa ekki enn svarað mér. Það má endilega biðja fyrir því að það komist í gegn því ég held þetta geti haft mjög góð áhrif á marga sem eiga erfitt með að gefa sér tíma í Biblíulestur.
Þeir sem vilja nálgast Biblíuna á öðrum tungumálum í símann geta nálgast hana hér.
Lykilorð: Go Bible, Biblían, Jesús Kristur, gsm sími
Trúmál og siðferði | Breytt 26.3.2010 kl. 08:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laun syndar og laun Guðs
25.3.2010 | 13:01
Það er áhugavert að skoða Rómverjabréfið 6.23 þar sem segir að laun syndarinnar sé dauði.
Orðið sem þýtt er sem laun þýðir í raun laun hermanns, eða matarskammturinn hans, eða vasapeningurinn hans. Þ.e. það sem hermaðurinn fær til þess að hafa í sig og á á meðan hann starfar fyrir herinn.
Það er ekki merkilegt kaup...
Syndin segir: Ef þú starfar fyrir mig þá færðu að launum dauða.
Ef ég starfaði hjá fyrirtæki sem borgaði þannig þá væri ég fljótur að hætta.
Á meðan Jesús segir: Ef þú starfar fyrir mig þá færðu að launum eilíft líf.
Af hverju þurfti Jesús að deyja?
25.3.2010 | 12:50
Það er stór spurning, af hverju þurfti Jesús að deyja? Í nútímasamfélagi er erfitt að skilja af hverju einhver ætti að þurfa að deyja fyrir nokkurn mann. Af hverju ætti Guð að þurfa að fórna syni sínum ef hann er almáttugur? Gat hann ekki bara fyrirgefið okkur syndirnar og búið mál?
Það er margt skrítið við kristindóminn. Sérstaklega fyrir þá sem ekki þekkja söguna á bakvið og skilja ekki "biblíumálið" sem talað er í kirkjum. Þar hefur kristið fólk brugðist. Reyndar hefur kristið fólk brugðist samfélaginu að mörgu leyti. En við þurfum að bæta úr því.
Í upphafi skapaði Guð heiminn...
Þegar Guð skapaði heiminn þá gaf hann fólki leyfi til að velja sig eða hafna sér. Hann ætlaði ekki að neyða neinn til að þjóna honum eða yfirleitt yrða á hann, en hann gaf fólki tækifæri til þess. Hann hefur sagt okkur frá hvers konar líf hann hefur fyrir okkur ef við viljum vera í samfélagi við hann og hann hefur sagt okkur hvað bíður okkar ef við viljum ekki vera hjá honum. Laun syndarinnar, þ.e. þess að gera það sem er ekki Guðs vilji, er dauði. Kristnir trúarhópar hafa að vísu misjafnan skilning á því hvað er átt við með því en ég held að flestir séu allavega sammála um að þessi dauði þýði einhvern aðskilnað frá Guði.
Það er, ef við veljum að óhlýðnast Guði þá veljum við aðskilnað frá Guði og hann veitir okkur hann.
Mannkynið valdi að fara úr vilja Guðs
Það getur hver maður séð að mannkynið hefur fyrir löngu valið að fara úr vilja Guðs. Biblían segir að ekki neinn maður sé réttlátur og að allir hafi syndgað. Samvæmt því þá er allt mannkynið orðið aðskilið frá Guði.
Jesús bjargar
Í stuttu máli þá er það þetta sem gerðist. Laun syndarinnar var aðskilnaður frá Guði og því áttu allir að vera aðskildir frá Guði. En Guð vildi gefa annað tækifæri. Það var ekki hægt að afnema lög sem hann hafði sett bara af því allir brjóta þau, ekki frekar en dómari afnemur lagaákvæði sem sendir marga í fangelsi. Réttlætinu varð að verða fullnægt.
Þess vegna þurfti Jesús að deyja. Réttlætinu var fullnægt með því að hann dó fyrir okkur. Jesús tók á sig laun syndarinnar.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 12:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Hættulegt að brjóta reglurnar!
6.3.2010 | 20:13
|
Björn beit fingur af konu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
ABC - börn sem vantar hjálp
14.1.2010 | 21:46



